
Tilboðsmarkaður mjólkur 1. september 2022
07.07.2022
Næsti markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn þann 1. september næstkomandi.
Opnað hefur verið fyrir tilboð, en tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. ágúst næstkomandi.
Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt inn á www.afurd.is.
Líkt og áður er að hámarki hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega.