Þyngdist um 2,2 kg á dag!
04.02.2013
Nú stendur kúabændum til boða að kaupa sæði úr Limósín nauti sem hefur einstaka vaxtareiginleika en ungnautið óx um heil 2.234 gröm á dag með hreint magnaða fóðurnýtingu eða einungis 4,9 fóðureiningar á hvert kíló í þungaaukningu! Það er ungnautið Engkjær Get It, sem Viking Genetics selur sæði úr þessa dagana, sem hefur þessa einstöku eiginleika og annar fyrirtækið vart eftirspurn eftir sæði úr Enkjær Get It.
Þessi mikla vaxtargeta hefur gefið nautinu vaxtareinkunn upp á 126 með 51% öryggi sem er með því allra besta sem gerist í heiminum í dag. Vart þarf að taka fram að sæði úr þessu nauti er ekki í boði á Íslandi/SS.