Þrír mánuðir í Agritechnica
12.08.2013
Í dag eru sléttir þrír mánuðir í þýsku stórsýninguna Agritechnica, sem haldin er annað hvert ár en hún verður dagana 12.-16. nóvember nk. í Hannover. Þessi sýning, sem er sú stærsta sem haldin er í heimi, er sérhæfð fyrir vélar og tæknibúnað í landbúnaði. Eins og áður segir er sýningin haldin annað hvert ár en hitt árið á móti er svo haldin nautgriparæktarsýning, þ.e. sýning sem sérhæfir sig í öllu er við kemur nautgriparækt og tæknibúnaði fyrir þá búgrein.
Árið 2011 voru 2.704 sýnendur til staðar á sýningunni og er útlit fyrir að enn fleiri verði í ár. Þá voru gestir sýningarinnar 419.212 frá 83 löndum en aukningin í fjölda gesta nam 18% frá sýningunni 2009. Alls er sýningarsvæðið á 380.000 fermetrum í 24 sýningarhöllum svo dagljóst er að ef einhver ætlar á þessa sýningu þá þarf amk. 2 daga til þess að ná að skoða flest af því sem í boði er.
Eins og áður segir er þetta tækni og tækjasýning og bera þar af dráttarvélar, þreskivélar, upptöku- og sáningarvélar ásamt jarðvinnslu og heyvinnutækjum. Auk þess allt fyrir flutninga, varahlutir og fleira.
Ef þessi upptalning hefur vakið áhuga einhverra á að fara á sýninguna, er ekki seinna vænna en að panta flug og gistingu því verðið mun væntanlega einungis hækka eftir því sem nær dregur opnun Agritechnica 2013/SS.