Beint í efni

Þín aðild að Bændasamtökunum

06.02.2017

Upplýsingar um félagsaðild félagsmanna Bændasamtaka Íslands eru núna aðgengilegar á Bændatorginu undir „félög/sambönd“ á upphafssíðunni. Hægt að sjá hvaða einstaklingar með félagsaðild tengjast viðkomandi búrekstri/búsnúmeri, en áður voru  þar upplýsingar um aðildarfélög umráðamanns búsins.

Greiðsluseðlar fara til bænda seinni hluta febrúar

Seinni hluta febrúar munu BÍ senda greiðsluseðla með félagsgjöldum til allra félagsmanna. Til þess að lágmarka útsendingu á röngum félagsgjöldum er gott að bændur yfirfari sínar skráningar.

Grunngjald fyrir tvo aðila á einu búi verður 42 þús. krónur á ári

Grunngjald fyrir aðild að Bændasamtökunum er 42.000 kr. fyrir árið 2017. Því fylgir aðild með fullum félagslegum réttindum fyrir tvo einstaklinga sem standa saman að búrekstri. Til aðgreiningar kemur þetta fram í félagatali sem „BÍ – félagsgjald A“.

Ef fleiri en tveir einstaklingar standa fyrir búi greiðir hver félagsmaður umfram tvo að auki 12.000 kr.  Til aðgreiningar er þessi leið skilgreind í félagatali sem „BÍ – félagsgjald B“.

Þeim vinsamlegu tilmælum er bent til félagsmanna að þeir yfirfari upplýsingarnar. Ef að breytinga er þörf og/eða ef einhverjar spurningar vakna þá má senda athugasemd í gegnum Bændatorgið (sjá neðst til hægri þegar komið er inn á upphafssíðu).

Ert þú með spurningar?

Fulltrúar í þjónustuveri BÍ munu svara fyrirspurnum í síma 563-0300 á skrifstofutíma. Þær Guðbjörg Jónsdóttir og Guðlaug Eyþórsdóttir svara fyrirspurnum um það sem snýr að félagsaðild en þær Jóhanna Lúðvíksdóttir og Sigríður Þorkelsdóttir sjá um innheimtumál. Netfang Bændasamtakanna er bondi@bondi.is.

Vinsamlegast hafið samband fyrir 20. febrúar

Æskilegt er að þeir sem vilja breyta skráningu á félagsaðild hafi samband í síðasta lagi 20. febrúar nk. til að ná inn breytingum fyrir útsendingu reikninga.

Nánari upplýsingar um aðild og félagsgjöld BÍ er að finna hér á vef samtakanna.


Guðbjörg Jónsdóttir er verkefnisstjóri við innleiðingu félagsgjalda hjá BÍ. Hún og fleiri starfsmenn hjá BÍ svara fyrirspurnum í síma 563-0300 og í netfangið bondi@bondi.is.

 
Starfsfólk á skrifstofu BÍ er boðið og búið að gefa upplýsingar um félagsgjöldin.