Þátttaka í sæðingum 2012
07.03.2013
Samkvæmt upplýsingum úr skýrsluhaldskerfi Bændasamtaka Íslands voru framkvæmdar 44.357 sæðingar hér á landi árið 2012. Þar af var fjöldi 1. sæðinga 25.905. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun var fjöldi mjólkurkúa árið 2012 alls 25.661, fjöldi holdakúa var 1.639 og fjöldi kelfdra kvígna var 6.539. Heildarfjöldi kúa og kvígna var því 33.839.
Eðlilegast er að meta þátttöku í sæðingum sem fjölda 1. sæðinga og deilda heildarfjölda kúa og kelfdra kvígna upp í þá tölu. Heildarfjöldi 1. sæðinga árið 2012 var 25.905 eins og áður segir, þannig að þátttaka í sæðingum á síðasta ári var 76,6%. Af þessu má draga þá ályktun að rúmlega 6.000 gripir, tæplega 20% kúa og kvígna, hafi fengið fyrsta sinni við heimanauti, sem er nokkuð hærra hlutfall en þekkist í nálægum löndum. Í Noregi er þátttaka í sæðingum 85%. Væri hlutfallið hér svipað og þar, væri annað hvort hægt að prófa 2-3 naut til viðbótar á hverju ári, eða stækka afkvæmahópana hjá nautum í afkvæmaprófun um 10-15%. Hvort tveggja myndi leiða til aukinna framfara í ræktunarstarfinu. Þetta er þekkt staðreynd sem hamrað hefur verið á svo árum skiptir, án árangurs. Af ætterni kúnna (70% undan sæðinganautum og 30% undan heimanautum) má svo ráða, að talsvert er um að kýr séu sæddar 1. sæðingu en haldi þær ekki við henni, er notað heimanaut í kjölfarið. Í töflunni hér að neðan má sjá þátttöku í sæðingum eftir héruðum, eins og hún var árið 2012.
Hérað | Fj. sæð. | Fj. 1. sæð. | Fj. mj.kúa | Fj. h.kúa | Fj. kvíg. | Þáttt. í sæð. | Þáttt. án holdak. |
Kjalarn. | 503 | 302 | 318 | 194 | 114 | 48,2% | 69,9% |
Borg. & Snæf. | 5.072 | 2.969 | 2.936 | 201 | 648 | 78,4% | 82,8% |
Dalir | 745 | 460 | 451 | 0 | 81 | 86,5% | 86,5% |
Vestf. | 966 | 600 | 761 | 30 | 182 | 61,7% | 63,6% |
Strandir | 82 | 68 | 60 | 0 | 8 | 100% | 100% |
V-Hún. | 885 | 546 | 531 | 139 | 147 | 66,8% | 80,5% |
A-Hún. | 1.456 | 1.016 | 902 | 46 | 191 | 89,2% | 93,0% |
Skagafj. | 3.571 | 2.186 | 2.301 | 230 | 629 | 69,2% | 74,6% |
Eyjafj. | 7.690 | 4.838 | 4.689 | 142 | 1.305 | 78,8% | 80,7% |
S-Þing. | 2.753 | 1.499 | 1.522 | 87 | 426 | 73,7% | 77,0% |
Austurl. | 1.801 | 1.000 | 1.093 | 18 | 273 | 72,3% | 73,2% |
A-Skaft. | 692 | 414 | 461 | 11 | 84 | 74,5% | 76,0% |
V-Skaft. | 1.610 | 847 | 964 | 82 | 166 | 69,9% | 75,0% |
Rang. | 6.735 | 3.572 | 3.704 | 254 | 992 | 72,2% | 76,1% |
Árn. | 9.796 | 5.588 | 4.968 | 205 | 1.293 | 86,4% | 89,3% |
Samt. | 44.357 | 25.905 | 25.661 | 1.639 | 6.539 | 76,6% | 80,5% |
Í ljósi þess að holdanautabændur nota sæðingar lítið, enda erfðaefnið sem þeim stendur til boða orðið nærri því 20 ára gamalt og eftir því úrelt, er þátttakan einnig mæld að frátöldum holdakúnum og mælist hún þá um 80%. Líkur standa til að sæðingar holdakúa muni aukast talsvert frá því sem nú er, þegar búið verður að endurnýja erfðaefni holdanautastofnanna. Þá möguleika ber að skoða sérstaklega í ljósi þess að bændum í nágrannalöndunum býðst nú kyngreint sæði, bæði í mjólkur- og holdakýr, sem vafalítið mun hafa byltingarkennd áhrif á rekstrarumhverfi mjólkur- og kjötframleiðslunnar á komandi árum./BHB