
Taktu þátt í notendakönnun Huppu!
29.06.2023
RML hefur nú sett notendakönnun Huppu í loftið.
Könnunin er aðgengileg öllum þeim sem hafa virka áskrift að forritinu.
Til að taka þátt í könnuninni þarf að skrá sig inn í Huppu og smella á hlekk sem er í frétt á forsíðunni.
Markmið könnunarinnar er að fá betri yfirsýn yfir notkun bænda á forritinu og hvaða áherslur þeir vilja helst sjá varðandi áframhaldandi þróun á því.
Við hvetjum alla notendur Huppu til koma sínum sjónarmiðum á framfæri með því að taka þátt og þannig aðstoða RML við að gera forritið betra.