
Tækifærin óþrjótandi í átt að grænni framtíð
17.10.2022
Dagur landbúnaðarins, málþing Bændasamtakanna, undir yfirskriftinni Græn Framtíð, fór fram á Hótel Nordica síðastliðinn föstudag fyrir fullu húsi. Á málþinginu var fjallað um áskoranir og framtíðarverkefni í landbúnaði á Íslandi og er óhætt að segja að mikill áhugi hafi verið fyrir viðburðinum.
Erindin á málþinginu voru afar áhugaverð þar sem Ingólfur Friðriksson hjá Utanríkisráðuneytinu fjallaði um ytri vídd fæðuöryggis, Rúnar Þór Þórarinsson hjá Landeldi kynnti visthæfingu landeldis, úr fiskeldisúrgangi í öflugan áburð, Eygló Björk Ólafsdóttir fræddi gesti um starfsemina í Vallanesi og möguleika á matvælaframleiðslu í skjóli skóga, Karvel L. Karvelsson, hjá RML, sýndi fram á hvernig upplýsingar koma að notum í baráttunni við loftslagsmál og Sigurður Ingi Friðleifsson hjá Orkustofnun hélt erindi um fæðuöryggi og orkuöryggi. Eftir erindin voru líflegar og skemmtilegar panelumræður. Erindin og dagskrá málþingsins má sjá hér að neðan:
Erindi Ingólfs Friðrikssonar hjá Utanríkisráðuneytinu
Erindi Rúnars Þórs Þórarinssonar hjá Landeldi
Erindi Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur bónda í Vallanesi
Erindi Karvels L. Karvelssonar hjá RML
Erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar hjá Orkustofnun
Dagskrá málþingsins var eftirfarandi:
Setning
Gunnar Þorgeirsson - Formaður Bændasamtaka Íslands
Ytri vídd fæðuöryggis
Ingólfur Friðriksson - Utanríkisráðuneytið
Visthæfing landeldis – Úr fiskeldisúrgangi í öflugan áburð
Rúnar Þór Þórarinsson - Yfirmaður sjálfbærni og nýsköpunar Landeldi
Matvælaframleiðsla í skjóli skóga – Lífræn ræktun til framtíðar
Eygló Björk Ólafsdóttir - Bóndi í Vallanesi
Að gera gagn – Hvernig upplýsingar koma að notum í baráttunni við loftslagsmál
Karvel L. Karvelsson - Framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar Landbúnaðarins
Orkan í sveitinni
Sigurður Ingi Friðleifsson - Sviðsstjóri loftslagsbreytinga, orkuskipta og nýsköpunar Orkustofnunar
Ávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson - Ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála
Að loknum erindum voru pallborðsumræður sem Guðmundur Gunnarsson, fréttastjóri Markaðarins stýrði. Í panel voru eftirtaldir:
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra
Erna Björnsdóttir, fagstjóri matvæli og náttúruafurðir Íslandsstofu
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Helgi E. Þorvaldsson, formaður starfshóps um kornrækt
Hlédís Sveinsdóttir, meðhöfundur skýrslunnar Ræktum Ísland
Svanhildur Hólm, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs