Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Sýnataka vegna sjúkdómaeftirlits

11.09.2014

Alþjóðlega dýraheilbrigðismálastofnunin (OIE) hefur viðurkennt Ísland sem kúariðulaust land á sögulegum forsendum. Þar vegur þyngst að  kúariða hefur aldrei greinst hér á landi, lifandi nautgripir hafa ekki verið fluttir inn síðan 1933, bannað hefur verið að flytja inn kjöt- og beinamjöl  síðan 1968 og óheimilt er að fóðra nautgripi á kjöt- og beinamjöli síðan 1978. Þessi alþjóðlega viðurkenning er afar mikilvæg fyrir íslenska nautakjötsframleiðslu og heilnæmi íslensks landbúnaðar. Til þess að Ísland geti viðhaldið þessari stöðu sinni hjá OIE, þarf ákveðinn fjöldi heilasýna úr nautgripum að berast árlega til riðuskimunar.

 

Ísland verður árlega að sýna fram á tilskilinn fjölda sýna til skimunar, sbr. reglugerð nr. 041/2012 um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar. Taka skal sýni úr eftirfarandi flokkum nautgripa:

 

·       Allir gripir eldri en 24 mánaða sem er slátrað í neyð.

·       Allir gripir eldri en 24 mánaða sem eftirfarandi hefur komið fram við skoðun fyrir slátrun:

o     þreyta eða óróleiki,

o     grunur eða staðfesting á smitsjúkdómi sem getur borist í fólk eða dýr,

o     grunur eða staðfesting á sjúkdómi eða einhvers konar röskun sem getur leitt til að kjötið sé óhæft til manneldis.

·       Allir gripir eldri en 30 mánaða sem

o     slátrað er til manneldis,

o     slátrað er vegna útrýmingar á sjúkdómi en sýna ekki klínisk einkenni.

·       Allir gripir eldri en 24 mánaða sem hafa drepist eða verið lógað vegna annars en

o     niðurskurðar vegna farsóttar, t.d. gin- og klaufaveiki

o     slátrunar til manneldis

 

Bestu vísbendingu um heilsufar nautgripa á Íslandi hvað kúariðu varðar, gefa sýni úr grunsamlegum tilfellum, þ.e.a.s. fullorðnum gripum sem drepast heima á bæ eða er lógað vegna sjúkdóma eða slysa.


Matvælastofnun óskar eftir samstarfi við nautgripabændur við að tryggja þessa miklu hagsmuni landsins, með því að leggja til sýni úr fullorðnum nautgripum sem drepast eða er slátrað heima. Bændur snúa sér þá til síns héraðsdýralæknis og í samráði við þá er tekin ákvörðun hvort eftirlitsdýralæknir frá Matvælastofnun taki sýnin, dýralæknir viðkomandi bús eða bóndinn sjálfur.

 

Í öllum tilfellum er sýnatakan bændum að kostnaðarlausu.

 

Leiðbeiningar um sýnatöku er hægt að nálgast hér að neðan.

 

Sigrún Bjarnadóttir,
dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma

 

Leiðbeiningar um sýnatöku, frágang og sendingu sýna

Rannsóknarbeiðni vegna riðusýna