Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum

25.10.2021

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, og nýtur framlaga frá heilbrigðisráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu samtals 30 milljónir kr. á ári í þrjú ár, þ.e. til ársloka 2022. 

Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.

  1. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til grunnrannsókna í sýklalyfjaónæmi. 
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram: Markmið verkefnis, fjárhæð sem sótt er um í sjóðinn, framkvæmda- og kostnaðaráætlun, áætlun um nýtingu fjármagns sem sótt er um, rannsóknarleyfi og hvernig nýta megi niðurstöður til að draga úr sýklalyfjaónæmi. Sótt skal um í nafni einstaklings, stofnunar eða starfseiningar.
    • Úthlutanir sjóðsins eru tvisvar á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2021.
       
  2. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna tilteknar skimanir fyrir ónæmum sýklum.
    • Til nánari skýringa verða einungis fjármagnaðar skimanir sem eru umfram lögbundnar skimanir, t.d. tilteknar skimanir í matvælum, sauðfé, hrossum, gæludýrum, sníkjudýrum og umhverfi.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram skimunar- og kostnaðaráætlun og rökstuðningur fyrir mikilvægi verkefnisins.
    • Úthlutanir sjóðsins eru einu sinni á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2021. 
       
  3. Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna umframkostnað vegna rannsókna í almannaþágu í því skyni að rekja uppruna sýkla sem dreifast á milli manna og dýra (súnur) í þeim tilvikum þegar upp koma hrinur, hópsýkingar eða faraldrar. 
    • Umsóknir geta borist sjóðnum allt árið um kring og verða umsóknir teknar til umfjöllunar á fundi sjóðsstjórnar í kjölfar þess að þær berast.
    • Í styrkumsókn skal m.a. koma fram lýsing á atburðinum og rannsóknaáætlanir viðkomandi stofnana auk frumrits reikninga vegna rannsókna sem áritaðir eru af yfirdýralækni eða sóttvarnalækni.
    • Úthlutanir sjóðsins eru eftir þörfum.

Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni https://minarsidur.stjr.is 

Nánar um sjóðinn hér