Beint í efni

Svíar fá útflutningsheimild til Taívan

11.10.2017

Undanfarin misseri hafa sænskir kúabændur átt í vök að verjast gagnvart innflutningi landbúnaðarvara en nú kann að vera að þeir geti snúið vörn í sókn en Svíþjóð hefur nú fengið heimild til þess að flytja nautakjöt til Taívan. Þetta kann að vekja undrun einhverra en þess má geta að einungis tvö lönd í Evrópu hafa hlotið leyfi til þess að flytja inn á Taívan en hitt landið er Holland. Þetta er því afar stórt og mikilvægt skref fyrir sænska kúabændur sem nú geta vonandi séð fram á bjartari tíma, amk. þegar horft er til nautakjötsframleiðslu landsins.

Það var í tengslum við útbreiðslu á kúariðu árið 2003 að Taívan lokaði á allan innflutning á nautakjöti frá Evrópu og hefur landið verið afar tregt til þess að opna fyrir innflutning á ný. Mörg lönd hafa reynt að fá heimild en fengið synjun, á grundvelli öryggissjónarmiða í tengslum við matvælaöryggi Taívan. Sænskir kúabændur hafa tekið þessum fréttum vel enda gæti þessi nýji markaður reynst mikið gæfuspor sé rétt staðið að málum/SS.