
Sumarlokun skrifstofu BÍ
15.07.2022
Skrifstofur Bændasamtakanna verða lokaðar frá 18. júlí, til 9. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
Bændur sem vantar aðstoð við skýrsluhaldsforritin Huppa, Fjárvís, World Fengur, Heiðrún, Jörð og dkBúbót er bent á að hafa samband við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (s. 516-5000).
Fyrirspurnir um opinberar greiðslur skal beina til Matvælaráðuneytisins (s. 545-9700).
Bændablaðið kemur út þann 21. júlí nk. og verður ritstjórn blaðsins að störfum til og með 20. júlí en þá skella þau sér einnig í vel verðskuldað sumarfrí til 12. ágúst. Bændablaðið mun því ekki koma út þann 11. ágúst en útgáfa blaðsins þann 25. ágúst verður stærri að umfangi. Fram að 20. júlí verður hægt að ná í ritstjórn Bændablaðsins í gegnum bein númer starfsmanna, sem nálgast má á vefsíðu Bændablaðsins, bbl.is og á bondi.is.
Njótið sumarsins!