Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Streymt frá kynningu Boston Consulting Group á skýrslu um lagareldi

28.02.2023

Helstu niðurstöður skýrslu alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi verður kynnt í dag kl. 13.30 á opnum fundi á Hilton Reykjavík Nordica. Jafnframt má fylgjast með fundinum í streymi.

Skýrslan gerir ítarlega úttekt á stöðu lagareldis á Íslandi ásamt framtíðarmöguleikum og áskorunum greinarinnar. Niðurstöður skýrslunnar munu nýtast við stefnumótun fiskeldis á Íslandi til framtíðar. Tekið var mið af umhverfismálum, verðmætasköpun og regluverki.

Til samræmis við stjórnarsáttmála var áhersla lögð á að kortleggja tækifæri til sjálfbærs vaxtar greinarinnar með vísindalega þekkingu að leiðarljósi. Gerð var samanburðargreining við þau lönd sem stunda lagareldi ásamt úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa af hinni ýmsu starfsemi, þ.m.t. sjókvíaeldis.