
Stórgripaslátrun framundan í Brákarey
26.09.2018
Slátrun hefst í dag í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Frá þessu er greint á skessuhorn.is. Hópur áhugafólks um rekstur sláturhúss hefur tekið húsnæðið á leigu til tíu ára og er Þorvaldur T. Jónsson, bóndi í Hjarðarholti, í forsvari fyrir hópinn. Stefnt er að rekstri þjónustusláturhúss allt árið. Samkvæmt því sem fram kemur í fréttinni verða verkefni fyrstu vikurnar dilkaslátrun. Hins vegar er húsnæðið viðurkennt stórgripasláturhús og þegar fram líður verða nautgripir og hross tekin til slátrunar og eftir atvikum svín einnig.
Samkvæmt Þorvaldi er þörfin fyrir þjónustusláturhús vissulega til staðar enda margir sem hyggja á sölu kjöts beint frá býli. Fyrst um sinn munu bændur selja afurðirnar sjálfir en stefnt er að því að sláturhúsið komi sér upp söluleyfi til að geta selt til verslana og annarra kaupenda.