Stjórnarfundur LK 7. mars
08.03.2012
Stjórn Landssambands kúabænda hélt 8. fund sinn á þessu starfsári í gær, 7. mars. Á fundinum voru m.a. tekin fyrir verðlagsmál mjólkur, farið var yfir helstu atriði fundar með ráðherra búnaðarmála 22. febrúar sl., skipulag komandi aðalfundar, ársreikning LK 2011, stöðu verkefna og ályktana síðasta aðalfundar, uppbyggingu félagskerfis bænda, möguleika veffræðslu fyrir hérlenda kúabændur, leiðbeiningar um góða búskaparhætti og fleiri mál. Fundargerð verður birt á vefnum hið fyrsta./BHB