Stjórnarfundur LK 18. ágúst
18.08.2015
Stjórn Landssambands kúabænda hélt fimmta fund sinn á þessu starfsári í dag, þriðjudaginn 18. ágúst. Á fundinum var farið yfir framleiðslu- og markaðsmál mjólkur, niðurstöður búreikninga og upplýsingar um afkomu greinarinnar 2014, verðlagsmál mjólkur, gerð samnings um starfsskilyrði greinarinnar, málefni nautakjöts, ákvæði reglugerðar um geymslurými fyrir búfjáráburð, ráðgjöf í nautgriparækt og fleiri málefni. Þá var afgreidd fundargerð fjórða fundar stjórnar, sem haldinn var 29. júlí sl. og hefur hún verið birt á naut.is./BHB