Stjórn LK gerir tillögu um breytingar á C-greiðslu
04.05.2002
Á stjórnarfundi LK, 1. maí sl., var samþykkt tillaga um breytingu á C-greiðslum. Tillaga stjórnar fyrir næsta verðlagsgsár um skiptingu C-greiðslunnar er eftirfarandi: 8,0% skiptist á nóvember til febrúar, 1,5% lendi á júlí, 2,5% á ágúst, 2,0% á september og 1,0% á október. Forsendur tillögunnar eru fyrst og fremst ójafnvægi í innvigtun mjólkur á milli mánaða, en telja má líklegt að bónusgreiðslur á sumar- og haustmánuði muni leiða til aukinnar mjólkurinnvigtunar þessa mánuði.
Af þessu má ljóst vera að enn mikilvægara en áður er að huga að sumar- og haustbeit og eru kúabændur hvattir til að gera markvissar áætlanir þar að lútandi.