SS lækkar verð á nokkrum tegundum af Yara áburði
16.02.2012
Sláturfélag Suðurlands hefur ákveðið að lækka verð á áburðartegundunum NP 26-6, NPK 24-4-7 og NPK 15-7-12, en verðskrá Yara var birt 25. janúar s.l. Þetta er gert til að tryggja viðskiptavinum okkar afar hagstætt verð á einkorna Yara áburði. Þeir fjölmörgu bændur sem þegar hafa pantað Yara áburð njóta einnig verðlækkunarinnar og þurfa ekki að gera neinar sérstakar ráðstafanir vegna þess. Ný verðskrá og nánari upplýsingar eru á heimasíðunni yara.is og hjá sölumönnum.
Fréttatilkynning frá SS