SS hækkar einnig verð til kúabænda
07.06.2005
Í morgun hækkaði Sláturfélag Suðurlands verð á nautgripaafurðum til bænda og greiðir nú hæstu verð í 14 flokkum m.a. ölllum stærstu flokkunum s.s. UNI A (362 kr/kg), KIU A (289 kr/kg) og KI A (281 kr/kg). Í gær hækkaði Sláturhúsið Hellu hf. verð á nautgripaafurðum einnig og munar nú töluvert miklu á þessum tveimur sláturhúsum og öðrum á landinu.
Kúabændur eru hvattir til þess að kynna sér vel hvar bestu kjörin fást fyrir nautgripina áður en sláturleyfishafi er valinn.
Smelltu hér til að skoða gildandi verðskrá sláturleyfishafa
Landssamband kúabænda hefur tekið saman verðdæmi um kúabónda sem ætlar að senda frá sér fjóra gripi í sláturhús og er miðað við eftirfarnadi forsendur:
- Hann áætlar að tvö naut flokkist sem UNI A og UNI M+, kvíga fari í KIU A og kýr í KI A.
- Hann áætlar að fallþungi þessara gripa verði sá sami og meðalfallþungi gripa í þessum flokkum var í síðasta uppgjöri Landssambands kúabænda.
- Gripina sendir hann í sláturhús á föstudegi, sem jafnframt er fyrsti virki dagur mánaðarins og hann tekur að sjálfsögðu tillit til þess hvort og þá hve mikið hann fái greitt fyrir tungur, innmat og húðir.
- Verðmæti greiðslukjara miðar hann við 15% yfirdráttarvexti.
- Miðað við verðskrá sláturleyfishafa 7. júní á vef LK fær viðkomandi bóndi eftirfarandi fyrir þessa sláturgripi:
Sláturfélag Suðurlands: 259.765,-
Sláturhúsið Hellu hf: 257.118,- (munur kr. -2.647,- þar af kr. -423,- v. gr.kjara)
Kaupfélag Skagfirðinga: 254.288,- (munur kr. -5.477,- þar af kr. -419,- v. gr.kjara)
Borgarnes kjötvörur: 249.427,- (munur kr. -10.338,- þar af kr. -411,- v. gr.kjara)
Norðlenska hf.: 248.500,- (munur kr. -11.256,- þar af kr. -717,- v. gr.kjara)
Sölufélag Austur-Húnvetninga: 246.615,- (munur kr. -13.615,- þar af kr. -2.762,- v. gr.kjara)
B.Jensen ehf.: 242.928,- (munur kr. -16.837,- þar af kr. -5.305,- v. gr.kjara)
Kaupfélag Króksfjarðar: 241.448,- (munur kr. -18.317,- þar af kr. -1.096,- v. gr.kjara)
Sláturfélag Vestur-Húnvetninga: 238.886,- (munur kr. -20.879,- þar af kr. -5.730,- v. gr.kjara)
Þess má geta að ekki er tekið tillit til flutningskostnaðs né þess hvort dregið sé af innleggi bóndans í stofnsjóð og/eða hlutafjárkaup.