Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

SS greiddi 2,8% uppbót á afurðaverð

07.03.2013

Þann 22. febrúar sl. greiddi Sláturfélag Suðurlands 2,8% uppbót á afurðaverð vegna innleggs á árinu 2012, alls 47 mkr. en að viðbættum virðisaukaskatti 59 mkr. Uppbót á afurðaverð er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.

Stjórn SS samþykkti á stjórnarfundi hinn 19. febrúar 2013 að hafa sem viðmiðun að greiða samtals einn þriðja af afkomu móðurfélagsins af reglulegri starfsemi eftir skatta og fyrir reiknaða hlutdeild í afkomu dótturfélags og hlutdeildarfélaga til eigenda og félagsmanna.

Ef jafna þarf tap eða leggja framlög í lögbundna sjóði kemur það til frádráttar. Þessi þriðjungur skiptist í arð þ.m.t. arð vegna verðbóta til B deildar, vexti til A deildar og uppbót á afurðaverð liðins árs. Arður til B deildar og vextir á A deild greiðast skv. samþykktum félagsins en það sem á vantar að þriðjungi af afkomu sé náð verður greitt sem uppbót á afurðaverð. Með þessum hætti er ætlunin að tengja enn betur en verið hefur ávinning bænda sem skipta við félagið við afkomu er vel gengur.

 

www.ss.is greindi frá