
Spánverjar í kjötsvindli
21.06.2017
Spænska lögreglan handtók á dögunum 14 manns í tengslum við umfangsmikið kjötsvindl en um var að ræða stóra hamborgaraframleiðslu. Upp komst um svindlið er gerð var rannsókn á hamborgurum í landinu og kom þá í ljós að á markaðinum voru seldir hamborgarar sem samkvæmt umbúðalýsingunni áttu að vera af mestu gæðum og innihald hreint nautagripakjöt. Við rannsókn á þessu „kjöti“ kom hins vegar í ljós að ekki nema 25% af vörunni var í raun og veru kjöt og það af slökum gæðum!
Spánverjarnir voru ekkert að tvínóna við hlutina og gengur hraustlega til verks og handtóku alla þá aðila sem tengdust þessu svikamáli og eins og hér að ofan greinir náði málið til 14 aðila. Í fréttum um málið segir að spænska lögreglan telji að fyrirtækið, sem er umsvifamikið í framleiðslu á tilbúnum hakkréttum, hafi hagnast verulega á þessu svindli/SS.