
Spá framleiðsluaukningu í Nýja-Sjálandi
29.06.2017
Við sögðum frá því í lok maí að eftir töluverða fækkun kúa í Nýja-Sjálandi árið 2015, þá hefur kúnum verið að fjölga síðan. Eðlilega fylgir mjólkurframleiðslan að einhverju leyti með þessari þróun í fjölda á kúm og nú, í fyrsta skipti í þrjú ár, stefnir í að framleiðslan muni aukast í landinu. Spá Fonterra, samvinnufélags framleiðenda í Nýja-Sjálandi, gerir ráð fyrir að framleiðsluaukningin muni nema 3,2% frá miðju þessu ári fram á mitt næsta ár.
Þrátt fyrir spá um mikla aukingu hefur Fonterra gefið út að ekki sé talið að framleiðslan slái einhver met og er því spáð að félagið muni ná að afsetja alla framleiðsluna án þess að þrýstingur verði á afurðastöðvaverð/SS.