Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Smartland: Sjö ástæður til að nota smjör

10.04.2013

Í dálkinum Smartland á mbl.is í dag er fjallað um sjö ástæður til að nota smjör. Landssamband kúabænda tekur heils hugar undir þessa umfjöllun; íslenskir kúabændur eru stoltir af því að geta boðið íslenskum neytendum þessa heilnæmu afurð á hagstæðu verði.

 

Umfjöllun Smartlands:

 

 

 

Við vitum það vel að smá smjörklípa getur gert kraftaverk fyrir hina ýmsu rétti, að maður tali nú ekki um muninn á því að steikja egg á pönnu með smá smjöri frekar en olíu.

Smjörið hefur í seinni tíð verið að sækja í sig veðrið eftir nokkra lægð. Enda hefur sýnt sig að það er ekki orsök alls ills, eins og Kristján Gunnarsson, hjá Authority Nutrion bendir í eftirfarandi sjö ráðum.

1. Smjör er ríkt af fituleysanlegum vítamínum
Hér er einkum átt við vítamínin A, E og K2. Það síðastnefnda er vert að nefna sérstaklega en það er minna þekkt en hin tvö og finnst síður í nægilegum mæli í mataræði hins hefðbundna Vesturlandabúa. Þetta vítamín hefur mikilvægu hlutverki að gegna við vinnslu kalks í líkamanum en skortur á því hefur verið tengdur við hjartasjúkdóma, krabbamein, beinþynningu o.fl.

2. Smjör er ríkt af hollum mettuðum fitusýrum
Á tímabili var því víða haldið fram að mettaðar fitusýrur væru algjört eitur fyrir mannskepnuna. Þessar fullyrðingar hafa hins vegar verið hraktar hver á fætur annarri. Nýlegar rannsóknir hafa m.a.s. sýnt fram á að engin sérstök tengsl eru á milli mettaðra fitusýra og sjúkdóma á borð við hjarta- og æðasjúkdóma, ólíkt því sem áður var. Þvert á móti innihalda þær mikilvæg næringarefni sem stuðla að því að við finnum síður til hungurs og bætum brennsluna.

3. Smjör dregur úr hættu á hjartaáfalli ólíkt smjörlíki
Það er mikill misskilningur að betra sé að skipta út smjöri fyrir smjörlíki – þar er um verulega ójöfn skipti að ræða. Það er lítið vit í að skipta út náttúrulegri, tiltölulega hreinni afurð fyrir aðra unna, stútfulla af mismunandi transfitusýrum. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að neysla smjörlíkis getur leitt til aukinnar hættu á hjartasjúkdómum, eitthvað sem smjörið mældist ekki gera.

4. Smjör er mikilvæg uppspretta fitusýrunnar bútýrats
Smjör er ríkt af fitusýrunni bútýrati, sem dregur úr bólgum. Hún hefur auk þess verndandi áhrif á meltingarkerfið og býr yfir ýmsum fleiri kostum.

5. Smjör er ríkt af mikilvægu fitusýrunni línólsýru
Línólsýra er fitusýra sem hefur mikil áhrif á brennsluna. Hægt er að kaupa hana í hylkjaformi til nota sem aðstoð við að léttast. Auk þess að hjálpa til við að draga úr hlutfalli fitu í líkamanum hafa rannsóknir sýnt fram á að línólsýran vinni gegn myndun krabbameins.

6. Smjör er síður talið tengjast hættu á offitu
Oftar en ekki mæla heilbrigðisyfirvöld með því að við neytum frekar fitusnauðra mjólkurvara, þannig að við fáum allt það kalk sem við þörfnumst, á sama tíma og við sneiðum hjá óæskilegum hitaeiningum. En þetta er ekki alls kostar rétt en ekki hefur enn verið hægt að sýna fram á bein tengsl fitumeiri mjólkurvara og sjúkdóma á borð við offitu, hjarta- og æðasjúkdóma o.s.frv.

7. Smjör er dásamlegt
Þá er smjörið bara svo gott… sem út af fyrir sig ætti strangt til tekið að nægja.