Sláturkýr skortir !
19.02.2004
Samkvæmt nýju yfirliti á vef LK yfir framleiðslu og sölu nautgripakjöts í janúar 2004 varð verulegur samdráttur á slátrun kúa miðað við sama tíma í fyrra. Í ár var slátrun kúa í janúar 31,1% minni en á sama tíma í fyrra, en slátrun ungneyta var svipuð.
Líkleg ástæða fyrir skorti á kúm til slátrunar, þrátt fyrir mikla eftirspurn sláturleyfishafa, er sú að bændur halda lengur í kýr vegna minni mjólkurframleiðslu.
Smelltu hér til að sjá nánar yfirlit yfir framleiðslu og sölu nautgripakjöts.