Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Skýrsla um hagrænt vægi eiginleika í nautgriparækt

23.08.2019

Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (RML) hefur nú birt skýrslu um hagrænt vægi eiginleika í nautgriparækt en eins og nafnið bendir til fjallar hún um mat á hagrænu vægi eiginleika í kynbótastarfi nautgriparæktarinnar. Skýrslan var unnin á vegum RML af þeim Jóni Hjalta Eiríkssyni og Kára Gautasyni. Um er að ræða umfangsmikið verk sem staðið hefur yfir í tvö ár. Þessi vinna er mikill fengur fyrir nautgriparæktina og í reynd nauðsynlegur grunnur að ákvarðanatöku um ræktunarmarkmið fyrir íslenska kúastofnsins.

Helstu niðurstöður eu þessar:
– Þær áherslur sem unnið hefur verið með í kynbótastarfinu eru ekki fjarri því sem hagkvæmast er. Þó má minnka vægi afurða en auka vægi júgur- og spenagerðar og frjósemi auk endingar hjá þeim gripum sem hafa einkunn fyrir endingu.
– Bændur leggja minni áherslu á að bæta afurðasemi en útleiðsla hagrænna gilda bendir til að sé hagkvæmast.
– Sú árlega erfðaframför sem ætla má að sé í stofninum skilar hagræðingu upp á nálægt 150 milljónir króna á ári fyrir samfélagið í heild.
– Þeir fjármunir sem fara í kynbótastarfið eins og það er rekið í dag skila sér til baka á fáum árum með margföldum ávinningi ef horft er til lengri tíma.

Fagráð í nautgriparækt hefur ákveðið að nýta niðurstöður verkefnisins hið fyrsta og verður heildareinkunn breytt við næstu kynbótamatskeyrslu til samræmis við niðurstöður þess.

Skýrsluna má lesa hér: Skýrsla um hagrænt vægi eiginleika í nautgriparækt