Beint í efni

Skýrsla um aðgerðir gegn riðuveiki birt

08.11.2023

Nú hefur sérfræðingahópurinn sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði 16. maí sl. skilað skýrslu sem ber heitið „Aðgerðir gegn riðuveiki - ný nálgun með verndandi arfgerðum“.

Í henni má finna greiningu hópsins á núverandi stöðu og tillögur útfærslum við ræktun fjár með verndandi arfgerðir. Hópurinn lagði mat á árangur aðgerða stjórnvalda frá því að skipulagður niðurskurður hófst á níunda áratug síðustu aldar. Jafnframt var lagt mat á væntan árangur ræktunar á verndandi arfgerðum og mögulega verndandi arfgerðum og gildi mögulegra smitvarna til að hefta útbreiðslu riðusmits. Gert var ennfremur mat á smitvarnarráðstöfunum í hjörðum með tilliti til niðurskurðar og mat lagt á önnur fagleg álitamál um riðuveiki og varnir gegn henni.

Hópurinn leggur m.a. til að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland, þ.m.t arfgerðagreiningar. Einnig að stutt verði við sæðingar með hrútum sem bera verndandi arfgerðir og komið á fót samstarfi við.

Sérfræðingahópinn skipuðu þau Erla Sturludóttir dósent við LbhÍ, Hákon Hansson dýralæknir, Jón Hjalti Eiríksson lektor við LbhÍ, Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir, Stefanía Þorgeirsdóttir líffræðingur hjá Tilraunastöð HÍ að Keldum, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir hjá Tilraunastöð HÍ að Keldum og Thor Aspelund, prófessor við HÍ í líftölfræði.

Skýrslu hópsins má nálgast hér.