
Skýrsla starfshóps um varnir gegn sýklalyfjaónæmi
22.05.2017
Skýrsla starfshóps um tillögur um aðgerðir til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería hér á landi hefur verið birt á vef velferðarráðuneytisins. Niðurstöður nefndarinnar voru m.a. kynntar á ráðstefnunni „Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi“ sem haldin var 15 maí sl.
Á síðari árum hefur ónæmi gegn sýklalyfjum farið vaxandi í heiminum sem gerir meðferð ýmissa sýkinga erfiða og dýra. Í nýlegri skýrslu í Bretlandi er áætlað að um 700.000 einstaklingar deyi á ári hverju á heimsvísu af völdum sýklalyfjónæmra baktería og að þessi tala geti geti farið upp í um 10 milljónir einstaklinga á árinu 2050 ef ekkert verður að gert. Í skýrslu starfshópsins er gerð grein fyrir helstu áhættuþáttum sem stuðla að útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og tilgreindar aðgerðir í tíu liðum sem hópurinn leggur til svo koma megi í veg fyrir frekari útbreiðslu þess.
Í starfshópnum sátu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sem var formaður hópsins, Sigurbjörg Daðadóttir yfirdýralæknir og Vala Friðriksdóttir deildarstjóri Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. Starfshópurinn var skipaður af heilbrigðisráðherra.