Beint í efni

Skýrsla RML um rekstur kúabúa 2019-2021

30.03.2023

Á vef RML hefur nú verið birt skýrsla um rekstur og afkomuþróun kúabúa fyrir árin 2019-2021. Sú skýrsla er unnin út frá rekstrargögnum 154 kúabúa af landinu öllu sem endurspeglar um 36-38% af heildarmjólkurinnleggi landsins. Það hlutfall ásamt samanburði við gögn frá fyrri árum bendir til að gögnin gefi góða mynd af stöðu og þróun í greininni. 

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að þegar er hafin gagnasöfnun fyrir rekstrarárið 2022 og eru núverandi þáttakendur sem nýjir boðnir velkomnir inn í áframhaldandi greiningarvinnu. 

Í apríl mun verða haldinn kynningarfundur á netinu um niðurstöður verkefnisins. Tímasetning á þeim fundi verður auglýst síðar.