Skólamjólkurdagurinn í fleiri en 40 löndum
11.10.2012
Þrettándi Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn var haldinn hátíðlegur víða um heim í lok september en það er stofnun Sameinuðu þjóðanna FAO (Food and Agriculture Organization) sem stendur á bak við skólamjólkurdaginn. Markmiðið með þessum degi er að minna á mikilvægi þess að neyta hollra matvæla í skólum um allan heim en fleiri en 40 lönd tóku þátt í þessum degi í ár.
Víða um heim er aðgengi barna og unglinga að hollum matvælum af afar skornum skammti og þekking ungmennanna á hollu mattarræði oft takmarkað. FAO hefur með þessu átaki, í samvinnu við afurðastöðvar víða um heim, tekist að koma afar mikilvægum skilaboðum á framfæri til unga fólksins og er það mat sérfræðinga þeirra að árangurinn sé afar góður. Þar sem skólar hafa í framhaldinu haldið áfram að bjóða nemendum upp á mjólk, hefur það jafnvel aukið ásókn nemenda í skólana, en því miður er það síður en svo sjálfgefið í öllum löndum að börn mæti í skóla á hverjum degi/SS.