
Skoðanakönnun Nautgripabænda: Þið hafið 3 daga!
09.11.2022
Allir mjólkur- og nautakjötsframleiðendur eiga að hafa fengið skoðanakönnun nautgripabænda senda í tölvupósti þann 28. október. Í einhverjum tilfellum gæti könnunin hafa farið í „Ruslpóst eða Spam/Junk/Promotions/Other möppuna" þar sem um fjöldapóst er að ræða, svo endilega kíkið þangað ef þið finnið hana ekki í innhólfinu ykkar.
Síðar í dag verður sendur áminning í gegnum tölvupóst til þeirra sem hafa ekki tekið könnunina.
Könnunin er hluti að undirbúningi endurskoðunar búvörusamninga sem fer fram á næsta ári en samkvæmt 4. grein búvörulaga fara Bændasamtök Íslands með samningsumboðið fyrir alla nautgripabændur, óháð því hvort þeir séu félagsmenn í samtökunum eða ekki. Könnunin er því lögð fyrir alla mjólkur- og nautakjötsframleiðendur á Íslandi.
Hvert býli getur einungis tekið könnunina einu sinni en hún verður opin frá 28. október til kl. 23:59 þann 11. nóvember.
Hvetjum við alla til að taka þátt! Valkvætt er þó að svara könnuninni.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur á netföngunum gudrunbjorg@bondi.is eða hoskuldur@bondi.is