Skeljungur birtir áburðarverð – 12 til 14% hækkun
23.02.2011
Skeljungur birti í dag áburðarverðskrá 2011. Í töflunni hér að neðan má sjá samanburð á verði félagsins við fyrra ár, kr/tonn með staðgreiðsluafslætti. Flestar tegundir hækka um 12-14% milli ára. Dæmi eru þó um meiri hækkanir, eða allt að 18%. Með þessu hafa allir markaðsaðilar sem vitað er til að hyggi á áburðarsölu til bænda birt verðskrár sínar.
Tegund | Verð 2010 | Verð 2011 | Hækkun |
Sprettur 27 | 55.060 | 61.763 | 12,2% |
Sprettur 26-13 | 66.319 | 74.432 | 12,2% |
Sprettur 25-5 | 61.892 | 69.881 | 12,9% |
Sprettur 27-6-6 | 67.481 | 76.466 | 13,3% |
Sprettur 22-7-6 | 62.831 | 70.476 | 12,2% |
Sprettur 20-12-8 | 66.825 | 76.413 | 14,3% |
Sprettur 20-12-8 + Se | 69.168 | 78.607 | 13,6% |
Sprettur 20-10-10 | 66.825 | 75.818 | 13,5% |
Sprettur 16-15-12 | 69.027 | 80.191 | 16,2% |
Sprettur 26 + S | 57.532 | 64.629 | 12,3% |
Sprettur 20-5-13 Avail | 63.311 | 74.948 | 18,4% |
Sprettur 25-5 Avail + Se | ekki til | 73.495 | – |
Sprettur 16-13-16 Avail | ekki til | 82.018 | – |
Sprettur 12-10-21 Avail | ekki til | 88.417 | – |