Beint í efni

Sjö tilnefndir til Embluverðlaunanna

02.05.2019

Norrænu Emblu-matarverðlaunin verða afhent í Reykjavík 1. júní næstkomandi. Búið er að velja þá 7 keppendur sem taka þátt fyrir Íslands hönd í jafnmörgum keppnisflokkum. Auglýst var eftir tilnefningum á öllum Norðurlöndunum og alls bárust 320 tilnefningar, þar af rúmlega 50 hér á Íslandi.

Embluverðlaunin voru fyrst veitt í Kaupmannahöfn árið 2017. Þau eru norræn matarverðlaun sem er ætlað að hampa norrænni matarmenningu.

Íslensku tilnefningarnar til Embluverðlaunanna eru eftirfarandi:

Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2019

Rjómabúið á Erpsstöðum. Þorgrímur E. Guðbjartsson og Helga E. Guðmundsdóttir. Erpsstaðabúið framleiðir mjólk og fjölbreyttar mjólkurvörur sem seldar eru beint frá býli. Ostur, ekta skyr og ljúffengur rjómaís er þar á boðstólum ásamt fleiru. Sjá: Facebook

 

 

Hráefnisframleiðandi Norðurlanda 2019

Vogafjós / Vogabúið í Mývatnssveit. Fyrirmyndarbú þar sem íslenskar matarhefðir eru í hávegum hafðar í ferðaþjónustu. Sjá: www.vogafjos.is

 

 

Embluverðlaun fyrir mat fyrir marga 2019

Veitingadeild IKEA í Garðabæ. IKEA á Íslandi hefur náð einstökum árangri í sölu á matvælum og er nú svo komið að veitingastaður IKEA í Garðabæ er fjölsóttasti veitingastaður landsins. Sjá: www.ikea.is/veitingasvid

 

 

Miðlun um mat / Matarblaðamaður Norðurlanda 2019

Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumaður. Gísli er óþreytandi við að boða fagnaðarerindið um íslenskan mat og matarhefðir, bæði hér heima og á erlendri grundu. Sjá: www.gislimatt.is

 

 

Mataráfangastaður Norðurlanda 2019

Traustholtshólmi í Þjórsá. Ævintýralegur áfangastaður þar sem Hákon Kjalar Hjördísarson hefur skapað einstakt umhverfi og býður upp á fyrsta flokks matarupplifun. Sjá: www.thh.is

 

 

Matvælafrumkvöðull Norðurlanda 2019

Íslensk hollusta. Fyrirtæki sem hefur framleitt fjölbreyttar vörur úr íslenskri náttúru og getið sér gott orð í matvælageiranum. Krydd, sultur, þang, ber, vín og ýmsar sérvörur eru meðal afurða Íslenskrar hollustu. Sjá: www.islenskhollusta.is

 

 

Embluverðlaun fyrir mat fyrir börn og ungmenni 2019

Matartíminn er vörumerki í eigu Sölufélags garðyrkjumanna. Fyrirtækið hefur náð eftirtektarverðum árangri við að auka hlut íslenskra búvara í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Sjá: www.matartiminn.is

 

Dómnefnd kemur saman 31. maí

Fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum munu koma saman í lok maí og dómnefnir velja sigurvegarana. Í dómnefnd Embluverðlaunanna sitja fyrir Íslands hönd þau Guðrún S. Tryggvadóttir, formaður Bændasamtakanna, Brynja Laxdal, verkefnastjóri Matarauðs Íslands og Ólafur Helgi Kristjánsson, matreiðslumeistari á Hótel Sögu.

Verðlaunin sjálf verða veitt í Hörpu í Reykjavík í samvinnu við Norrænu kokkasamtökin sem halda ársþing sitt á sama tíma í höfuðstaðnum.

Norræn bændasamtök halda Embluverðlaunahátíðina

Embluverðlaunin eru haldin af norrænum bændasamtökum með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Bændasamtök Íslands sjá um framkvæmd Embluverðlaunanna í ár en þau eru veitt á tveggja ára fresti.

Upplýsingar um alla þá 48 aðila, sem eru tilnefndir til Embluverðlaunanna frá öllum Norðurlandaþjóðunum, er að finna á vefsíðunni www.emblafoodawards.com

Nánar verður fjallað um þá sem tilnefndir eru til Embluverðlaunanna í næstu Bændablöðum.