Beint í efni

Sífellt lægra hlutfall tekna til matarkaupa

19.05.2006

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands hefur vægi matar og drykkjar í heimilisútgjöldunum lækkað um fjórðung síðan 1992. Þá vörðu landsmenn að jafnaði 17,7% ráðstöfunartekna sinna til kaupa á mat og drykk. Í dag er þessi tala 13,3%, sem er sama hlutfall og Danir verja til þessa liðar.

Liðurinn mjólk, ostar og egg hefur lækkað enn meira, eða um 32%. Fyrir 14 árum fóru 3,5% útgjalda heimilanna til kaupa á þessum vörum, í dag 2,4%. Svipuð lækkun hefur orðið á nautakjöti, 1992 fóru 0,58% ráðstöfunartekna í þann lið, í dag 0,4%. Það er því ljóst að á þessum tíma hefur hagræðing í framleiðslu og vinnslu afurða kúabænda skilað sér beint til neytenda, í formi lægri útgjalda og bættra lífskjara.