Síðustu haustfundir LK í dag
26.10.2011
Í dag verða haldnir síðustu haustfundir LK þetta árið. Annar að að Friðarsetri í Holti í Önundarfirði kl. 12 og síðasti fundurinn í Kaffi Kjós kl. 20.30.
Á fundunum verður m.a. kynnt stefnumörkun Landssambands kúabænda til 2021. Stefnumörkunin lýsir framtíðarsýn búgreinarinnar til næstu 10 ára, auk þess sem hún útlistar með hvaða hætti LK hyggst starfa á næstu árum til hagsbóta fyrir íslenska nautgriparækt.
Auk stefnumörkunarinnar verða til umfjöllunar á fundunum framleiðslu-, sölu- og afkomumál, framkvæmd mjólkursamnings, staða lánamála bænda, greiðslumark mjólkur og kvótamarkaður, breytingar á laga- og regluumhverfi greinarinnar og staða umsóknar Íslands að ESB/SS.