Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Síðustu haustfundir LK 2010 eru í dag

21.10.2010

Í dag, fimmtudaginn 21. október, verða haldnir síðustu haustfundir LK þetta haustið, en fundirnir verða haldnir á Vesturlandi. Á fundunum munu forsvarsmenn LK fara yfir stöðu helstu mála s.s. um framleiðslu, sölu og afkomumál, stöðu búvörusamninganna og fyrirhugaðar breytingar á búvörulögunum, greiðslumark mjólkur árið 2011 og skiptingu b- og c-greiðslna, endurskoðun búnaðargjalds,stöðu aðlögunarferlisins að Evrópusambandinu, kvótamarkaðinn auk þess sem farið verður yfir stefnumörkun LK. Kúabændur og annað áhugafólk um nautgriparækt er hvatt til að mæta.

 

Fundirnir í dag verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

– Hótel Hamri við Borgarnes kl. 13.00

– MS Búðardal kl. 13.00 og

– í Kaffi Kjós kl. 20.30