Síðustu forvöð að svara viðhorfskönnun LK
27.02.2013
Vel á fjórða hundrað svör hafa borist við viðhorfskönnun Landssambands kúabænda, sem send var út þann 12. febrúar sl. Nú eru síðustu forvöð að svara viðhorfskönnuninni, lokafrestur er til miðnættis í kvöld, miðvikudaginn 27. febrúar 2013. Samtökin hvetja umbjóðendur sína eindregið til að svara könnuninni, þannig að sem skýrust mynd fáist af sjónarmiðum kúabænda um mikilvæg hagsmunamál. /BHB