Síðasti kynningarfundur BÍ í dag
26.11.2015
Í dag fer fram síðasti kynningarfundur Bændasamtaka Íslands
um tillögur samningsaðila um nýja búvörusamninga, en nú þegar hafa verið haldnir þrír slíkir fundir. Á fundinum verða forystumenn bænda með framsögur og umræður verða svo haldnar í kjölfarið.
Fundurinn í dag verður haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum klukkan 11.00.
Almennir bændafundir verða haldnir í héruðum um allt land þegar samningar verða fullgerðir en þær dagsetningar liggja ekki fyrir. Í kjölfar þeirra verður boðað til atkvæðagreiðslu meðal bænda/SS.