Beint í efni

Síðasti deildarfundur Auðhumlu á morgun

03.03.2011

Á morgun, föstudaginn 4. mars, verður haldinn síðasti deildarfundur Auðhumlu í bili og lýkur fundalotunni í Breiðafjarðardeild. Fundurinn verður haldinn í Hótel Ísafirði og hefst kl. 13:00. Á fundinum verður farið yfir rekstur Auðhumlu og MS og rekstrarniðurstöður ársins 2010 birtar. Þá verður farið yfir helstu atriði sem snúa að sölu og markaðsstarfsemi, m.a. útflutningsmál. Einnig verður farið yfir vinnslu- og dreifingarkostnað mjólkur, rætt um flutningskostnað og þá möguleika sem eru til sparnaðar við þá auk þess sem rætt verður um verðlagsmálin. Þessi mál og fleiri verða rædd og

 

er ástæða til þess að hvetja kúabændur viðkomandi deilda til þess að mæta og ræða stöðu greinarinar við forsvarsmenn Auðhumlu.