Samþykktar tillögur á aðalfundi LK 2016
07.04.2016
Aðalfundur Landssambands kúabænda sem haldinn var í síðustu viku, samþykkti alls 26 tillögur og ályktanir, auk breytinga á samþykktum sem lúta að félagsaðild og fjármögnun samtakanna í framtíðinni. Þá var sett inn ákvæði um skil á fundargögnum til aðalfundarfulltrúa og tímafrestur vegna tillagna um breytingar á samþykktum var lengdur. Tillögurnar má nálgast í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan./BHB