
Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga
18.11.2016
Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga er nú fullskipaður og er það í samræmi við ákvæði nýrra búvörulaga. Sex karlar og sex konur eiga sæti í hópnum, sem á að ljúka störfum fyrir lok árs 2018. Bændasamtökin tilnefndu þrjá fulltrúa og á Landssamband kúabænda fulltrúa í hópnum. Elín Heiða Valsdóttir, stjórnarmaður LK, situr í hópnum fyrir okkar hönd.
Í samráðshópnum eiga annars sæti:
- Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir formaður, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Róbert Farestveit, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
- Sindri Sigurgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
- Björgvin Jón Bjarnason, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
- Elín Heiða Valsdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
- Ólafur Arnarson, tilnefndur af Neytendasamtökunum
- Andrés Magnússon, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Elín Margrét Stefánsdóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Jóna Björg Hlöðversdóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Björg Bjarnadóttir, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Ögmundur Jónasson, skipaður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
/MG