Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Samningur um markaðsverkefnið Horses of Iceland endurnýjaður

04.04.2022

Við undirritun samnings. F.v. Pétur Þ. Óskarsson frkvstj. Íslandsstofu, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Guðni Halldórsson form. Landssambands hestamannafélaga, Sveinn Steinarsson form. Félags hrossabænda, Jelena Ohm verkefnastjóri og Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Félagi tamningamanna.
Þann 25 mars síðastliðin var undirritaður nýr samningur í Matvælaráðuneytinu, um markaðsverkefnið Horses of Iceland. Samkvæmt samningnum mun ráðuneytið verja allt að 25 milljónum gegn jafnháu mótframlagi aðila úr greininni næstu þrjú ár. Tilgangur verkefnisins er að byggja upp orðspor íslenska hestsins á völdum erlendum mörkuðum til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Íslandsstofa annast rekstur verkefnisins sem hefur verið starfrækt frá því árinu 2016. Þau félagasamtök sem koma að verkefninu eru Landssamband hestamannafélaga, Félag tamningamanna og Félag Hrossabænda sem er nú Deild Hrossabænda, en félagið hefur stutt verkefnið frá upphafi. Frá því verkefnið hófst hefur náðst góður árangur í markaðsstarfinu og útflutningur aukist á ný, eftir samdrátt árin á undan. Síðastliðið ár var metár í útflutningi íslenskra hrossa, en alls voru 3341 hross flutt úr landi. Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland hjá Íslandsstofu: „Það er mjög ánægjulegt að geta tryggt áframhaldandi markaðsstarf í þágu íslenska hestsins og hagsmunaaðila í greininni. Það hefur verið mikill stígandi í starfinu og aukinn áhugi á þessum knáa hesti. En það er enn starf að vinna og tækifæri til að sækja á nýja markaði.“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra:„Það er ljóst að það samhæfða markaðsstarf sem Horses of Iceland hefur staðið fyrir síðastliðin fjögur ár hefur borið árangur og því er það í senn ánægjulegt og mikilvægt að styðja við það áfram.“