Beint í efni

Sameining MS og MBF samþykkt í Dölunum

04.04.2005

Í dag lauk deildarfundi í Búðardal þar sem kosið var um samruna Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og Mjólkurbús Flóamanna. Sameiningin var samþykkt þar með 23 atkvæðum en 6 voru á móti og hafa því öll aðildarfélög MS samþykkt samruna MS og Mjólkurbús Flóamanna utan eitt, sem er fulltrúafundur MBF. Mishermt var fyrr

í dag að samruninn væri orðinn að veruleika, það getur fyrst orðið á morgun. Á morgun verður haldinn síðasti fundurinn um sameininguna, sem er fulltrúafundur í Mjólkurbúi flóamanna. Sameiningin hefur reyndar þegar verið samþykkt af aðalfundi MBF, en formsins vegna þarf fulltrúafundur að samþykkja samrunann.