Beint í efni

Samdráttur í sölu flestra kjöttegunda í október

17.11.2010

Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum sláturleyfishafa var sala á nautakjöti sl. 12 mánuði góð og hefur nú verið jákvæð þróun á sölu nautakjöts í langan tíma. Þó varð samdráttur í bæði framleiðslu og sölu á nautakjöti í október miðað við október í fyrra. Framleiðslan var 5,3% minni en í október 2009 og salan einnig 7,5% minni. Aðrar kjöttegundir gáfu einnig eftir í sölu í október ef frá er talið svínakjöt sem bætti við sig í sölu um 2,2% frá fyrra ári.

 

Vegna góðrar sölu á nautakjöti fyrr á árinu mælist ársvöxturinn í sölunni 3,4% en ef horft er til heildarsölu allra kjöttegunda varð samdráttur á sama tíma um 1,8%. Alífuglakjöt heldur áfram að seljast í mestu magni hér á landi, auk þess sem

sú kjöttegund er með mesta söluaukningu á 12 mánaða grunni eða 3,8%.

 

Í október var framboð á kúm 0,9% meira en á sama tíma í fyrra en framboð ungnauta dróst hinsvegar saman um 8,4%. Þá varð 10,4% samdráttur á framboði á eldri kúm og nam heildar samdráttur í framleiðslunni 5,3% á milli samanburðarmánaða.

 

Ef horft er til nánari sundurliðunar talna um nautakjötið má sjá að af heildarsölunni síðustu 12 mánuði, upp á 3.832 tonn, þá er hlutfall ungnauta 56,5% heildarmagnsins sem er óbreytt hlutfall frá því í september.

 

Nánar má lesa um framleiðslu og sölu á kjöti á vef Bændasamtaka Íslands með því að smella hér, októbertölur eru væntanlegar.