Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

SAM: Sambærileg innvigtun og í janúar í fyrra

21.02.2022

 

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 145,6 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (febrúar 2021 – janúar 2022) og 124,1 milljónir lítra á próteingrunni. Salan á próteingrunni er 0,4% minni samanborið við janúar fyrir ári síðan en salan á próteingrunni heldur þó áfram að aukast hægt og rólega og hefur aukist um 3,4% síðustu þrjá mánuði. Sé horft til söluna síðustu 12 mánuði þá jókst salan á bæði prótein- og fitugrunni um 1,5% en síðustu þrjá mánuði hefur salan á fitugrunni aukist um 1,6%.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman um 1% þrátt fyrir aukningu um 1% síðustu þrjá mánuði. Þannig nam innvigtun mjólkur 148,9 milljónum lítra. Árið byrjar svo með sambærilegri framleiðslu miðað við sama mánuð í fyrra. Heildar innvigtunin í janúar var 12 milljón lítrar, sem er rúmlega 46 þúsund lítrum meira en í janúar árið 2021 og svarar þessi munur til 0,4%.

                                                                                                                                                                                 /GBE