
SAM: Örlítil meiri innvigtun mjólkur fyrstu fjóra mánuði ársins samanborið við 2022
11.05.2023
Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun maí í fyrra til lok apríl í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu fjóra mánuði þessa árs 50,4 milljónir lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 49,5 milljónum lítra. Munurinn nemur því einungis 912 þúsund lítrum eða 0,6% aukningu milli ára.
Í apríl nam innvigtunin 12,82 milljónum lítra en í fyrra nam hún 12,85 milljónum lítra. Framleiðsla apríl mánaðar nú í ár er því 28,6 þúsund lítrum eða 0,2% minni en í apríl fyrir ári síðan. Hvað varðar innvigtun síðastliðna tólf mánuði þá stendur hún í 148,9 milljónum lítra sem er aukningum 1% miðað við sambærilegt tímabil mánuðina tólf þar á undan.
Í yfirlitinu kemur fram að sala á fitugrunni nam 148,2 milljónum lítra sem er aukning um 2,2% á tólf mánaða tímabili. Söluaukning upp á 1,2% hefur átt sér stað undanfarna þrjá mánuði, þrátt fyrir samdrátt upp á 0,8% nú í apríl. Salan á próteingrunni hefur einnig aukist síðustu þrjá mánuði, um 3,2% og enn meira sé horft til síðustu tólf mánaða eða um 4,8% samanborið við sambærilegt tímabil tólf mánuðina þar á undan. Munurinn á prótein- og fitusölu er þannig kominn niður í 18,2 milljón lítra.
