Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

SAM: Örlítið meiri innvigtun en í janúar í fyrra

13.02.2023

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 147,8 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (febrúar 2022 – janúar 2023) og 129 milljónir lítra á próteingrunni. Salan hefur aukist undanfarið árið á bæði prótein- og fitugrunni en á tólf mánaða tímabili jókst salan um 3,9% á próteingrunni og 1,5% á fitugrunni. Síðustu þrjá mánuði ársins hefur aukningin verið meiri eða 6,1% á próteingrunni og 2,9% á fitugrunni. Sé horft einungis til janúarmánaðar, þá var próteinsalan í janúar í ár 10% meiri en í janúar í fyrra á salan á fitugrunni 5,8% meiri janúar í ár en í janúar 2022.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman um 0,5% þrátt fyrir aukningu um 2,4% síðustu þrjá mánuði. Þannig nam innvigtun mjólkur síðustu tólf mánuðina 148,2 milljónum lítra. Árið byrjar þó með örlítið meiri framleiðslu miðað við sama mánuð í fyrra. Heildar innvigtunin í janúar var 12,2 milljón lítrar, sem er rúmlega 225 þúsund lítrum meira en í janúar árið 2022 og svarar þessi munur til 1,9%.