
SAM: 7,1% minni innvigtun en í janúar í fyrra
15.02.2019
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 145,2 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (febrúar 2018 – janúar 2019) og 129,2 milljónir lítra á próteingrunni. Það þýðir að salan á próteingrunni heldur áfram að dragast saman miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 2,5% síðustu 12 mánuði, en á sama tíma jókst salan á fitugrunni um 0,5%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 4,5% á próteingrunni og en fitusalan jókst um 0,2%.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 151,5 milljónum lítra sem er 0,3% samdráttur frá sama tímabili fyrir ári síðan. Árið byrjar svo líkt og fyrra ár endaði, með töluvert mikið minni framleiðslu miðað við sama mánuð í fyrra og nam heildar innvigtunin í janúar ekki nema 12,3 milljónum lítra, sem er rúmlega 900 þúsund lítrum minna en í janúar árið 2018 og svarar þessi munur til 7,1%/SS.