
SAM: Meiri innvigtun í maí 2023 en maí 2022
20.06.2023
Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun júní í fyrra til lok maí í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu fimm mánuði þessa árs 64,7 milljónir lítra. Á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 63 milljónum lítra. Munurinn nemur því um 1,7 milljónum lítra eða 2,7% aukningu milli ára.
Í maí nam innvigtunin 14,3 milljónum lítra sem er 812 þúsund lítrum meiri innvigtun en í maí í fyrra en heildarinnvigtun maímánaðar 2022 var 13,5 milljónir lítra. Framleiðslan í maímánuði jókst þannig um 6% milli ára. Hvað varðar innvigtun síðastliðna tólf mánuði þá stendur hún í 149,7 milljónum lítra, sem er 1,6% aukning miðað við sambærilegt tímabil mánuðina tólf þar á undan.
Í yfirlitinu kemur fram að salan á fitu- og próteingrunni er áfram góð. Salan á fitugrunni síðastliðna tólf mánuði nam 148,9 milljónum lítra sem er 2,3% aukning frá fyrra ári. Söluaukning upp á 3,2% hefur átt sér stað síðastliðna þrjá mánuði og var söluaukningin í maí alls um 5,9%. Salan á próteingrunni hefur einnig aukist síðustu þrjá mánuði, um 4,2% og enn meira eða um 4,6% sé horft til síðustu tólf mánaða. Í maí einum og sér varð söluaukning á próteingrunni um 6,8% samanborið við maí 2022 og er heildarsala á próteingrunni síðustu tólf mánuði komin í 130,7 milljónir lítrar. Munurinn á prótein- og fitusölu er þannig áfram 18,2 milljónum lítrar.
