Beint í efni

SAM: Innvigtun fyrstu níu mánuði þessa árs 115,7 milljónir lítra.

25.10.2023

Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun október í fyrra til lok september í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu níu mánuði þessa árs 115,7 milljónir lítra. Á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 112,6 milljónum lítra. Munurinn nemur því um 3 milljónum lítra eða 2,7% aukningu milli ára.

Í september nam innvigtunin 11,8 milljónum lítra sem er 243 þúsund lítrum meiri innvigtun en í september í fyrra en heildarinnvigtun septembermánaðar 2022 var 11,6 milljónir lítra. Framleiðslan í septembermánuði jókst þannig um 2,1% milli ára. Hvað varðar innvigtun síðastliðna tólf mánuði þá stendur hún í 151 milljónum lítra, sem er 3% aukning miðað við sambærilegt tímabil mánuðina tólf þar á undan.

Í yfirlitinu kemur fram að salan á fitugrunni síðastliðna tólf mánuði nam 149,4 milljónum lítra sem er 1,9% aukning frá fyrra ári. Salan stóð í stað síðastliðna þrjá mánuði. Salan á próteingrunni hefur aukist síðustu þrjá mánuði, um 2,1% og enn meira eða um 4,0% sé horft til síðustu tólf mánaða. Í september einum og sér varð söluaukning á próteingrunni um 1,9% samanborið við september 2022 og er heildarsala á próteingrunni síðustu tólf mánuði komin í 131,9 milljónir lítrar.