Beint í efni

SAM: innvigtun eykst áfram

18.04.2018

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 145,9 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (apríl 2017 – mars 2018) og 131,60 milljónir lítra á próteingrunni. Það er því áfram aðeins minni sala (-0,2%) á próteingrunni en 12 mánuðina þar á undan. Á hinn bóginn var hins vegar áframhaldandi aukning (+2,0%) á sölunni á fitugrunni. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn -1,4% á próteingrunni en söluaukningin á fitugrunni var 2,2%.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, nam innvigtun mjólkur 153,1 milljónum lítra sem er 2,9% aukning frá sama tímabili fyrir ári síðan. Innvigtun mjólkur nú í mars var afar góð eða 13,9 milljónir lítra sem er töluverð aukning í samanburði við sama mánuð í fyrra og nemur aukningin 4,1%. Innvigtun mjólkur til þessa í ár er nú komin í 39,5 milljónir lítra en sé sama tímabil skoðað fyrir árið í fyrra nam innvigtunin þá 37,5 milljónum lítra. Framleiðslan í ár er því 2,0 milljón lítrum meiri en á sama tíma í fyrra og eru það 5,3%/SS.