Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

SAM: Innvigtun ársins komin í 88,4 milljón lítra

25.08.2022

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 145,7 milljón lítrar síðustu 12 mánuði (september 2021 – ágúst 2022) og 125,5 milljón lítrar á próteingrunni. Það þýðir að salan á bæði prótein- og fitugrunni hefur aukist miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls jókst salan á fitugrunni um 0,8% síðustu 12 mánuði, og á sama tíma jókst salan á próteingrunni um 2,2%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða sjáum við söluaukningu um 4,7% á próteingrunni og  2,1% á fitugrunni. Miðað við júlí í fyrra jókst salan um 1,0% á próteingrunni en dróst saman um 0,6% á fitugrunni.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 146,3 milljón lítra sem er 1,6% samdráttur frá sama tímabili fyrir ári síðan.

Heildarinnvigtunin í júlímánuði nam 12,4 milljónum lítra, sem er rúmlega 715 þúsund lítrum minna en í júlí árið 2021 og því samdráttur um 5,5%. Heildarinnvigtun fyrstu sjö mánuði ársins er 88,4 milljónir lítra samanborið við 91,0 milljón lítra árið 2021 og nemur mismunurinn 2,8%.